Margt smátt tekur yfir rekstur Tanna

Verslunin Margt smátt.
Verslunin Margt smátt.

Þann 1. september mun fyrirtækið Margt smátt taka yfir sölu- og framleiðslustarfsemi Tanna. Félögin hafa um margra ára skeið starfað á sama markaði. Mun Margt smátt framvegis selja þær vörur sem Tanni var áður með og hefur verslunin því keypt hluta af framleiðslutækjum Tanna. 

Þrír starfsmenn Tanna munu bætast við í starfsmannahóp Margt smátt og verður rekstri Tanna í sölu á auglýsingavörum hætt í kjölfar breytinganna. Eru starfsmenn Margt smátt nú orðnir 27 talsins og hefur fyrirtækið verið starfrækt í 26 ár. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK