Nýir eigendur teknir við Lögmönnum Hafnarfirði

Þuríður B. Sigurjónsdóttir og Gunnar Sv. Friðriksson.
Þuríður B. Sigurjónsdóttir og Gunnar Sv. Friðriksson. mbl.is/Eva Björk

Lögmannsstofan Lögmenn Hafnarfirði hefur skipt um eigendur, en stofan var stofnuð árið 1984. Nýir eigendur Lögmanna Hafnarfirði eru Gunnar Sv. Friðriksson hdl. og Þuríður B. Sigurjónsdóttir hdl.

Fyrri eigendur hennar voru lögmennirnir Ólafur heitinn Rafnsson, Bjarni S. Ásgeirsson og Ingi H. Sigurðsson. Bjarni og Ingi munu enn um sinn starfa á stofunni, að því er fram kemur í tilkynningu.

 Nýir eigendur Lögmanna Hafnarfirði munu áfram sinna lögmannsþjónustu fyrir gamla viðskiptavini og mun stofan hér eftir sem hingað til veita einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum þjónustu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK