Beint flug frá Japan

Flugvél Japan Airlines á Keflavíkurflugvelli í dag.
Flugvél Japan Airlines á Keflavíkurflugvelli í dag. mynd/Emil Georgsson (Isavia)

Japan Airlines flýgur sex ferðir frá borgunum Osaka og Tókýó til Keflavíkurflugvallar í ágúst og september. Fyrsta flugið lenti á Keflavíkurflugvelli klukkan 13:30 í dag með 220 farþega. Þetta er þriðja árið í röð sem flugfélagið heldur uppi beinu flugi með ferðamenn til Íslands.

Fyrir tveimur árum voru farnar fjórar slíkar ferðir, tvær í fyrra en nú flýgur félagið sex ferðir, eina í ágúst og fimm í september, að því er Isavia segir í tilkynningu.

Félagið notar 300 farþega Boeing 777 þotur í Íslandsfluginu en næstu ferðir verða 4., 11., 13., 18., og 20. september. Flugtíminn er 10 klukkustundir.

Japönskum ferðamönnum hefur fjölgað mikið undanfarin ár. Samkvæmt tölum frá Ferðamálastofu voru þeir 12.363 árið 2013 sem er nánast tvöföldun frá árinu 2011, en þá fóru 6.902 Japanir um Keflavíkurflugvöll. Heildaraukning japanskra farþega á Keflavíkurflugvelli fyrstu sjö mánuði þessa árs er 14% miðað við fyrra ár, að því er fram kemur í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK