Töldu fjárfestingarleið ekki hagstæða

Um 41% tekna Advania komu frá Svíþjóð árið 2013, 14% …
Um 41% tekna Advania komu frá Svíþjóð árið 2013, 14% frá Noregi og 45% frá Íslandi. Hluthafar eru um 40. mbl.is/Ómar Óskarsson

Stjórnendur hins sænska AdvInvest, sem er nýr meirihlutaeigandi í upplýsingatæknifyrirtækinu Advania, kusu að nýta ekki fjárfestingarleið Seðlabankans og fá afslátt á krónum þegar fjárfest var í fyrirtækinu.

Þeir hefðu þá þurft að fjárfesta til að minnsta kosti fimm ára í fyrirtækinu. Þess í stað fá þeir það sem kallað er gulur miði, samkvæmt heimildum Viðskiptamoggans, og eiga því kost á að selja bréfin og fara úr landi með erlendan gjaldeyri.

Heimildir herma að þeir hafi talið að afslátturinn í gjaldeyrisútboðum bankans – sem hefur lækkað úr um 20% í um 10% að undanförnu – hafi ekki verið nægjanlegur til að vega upp á móti þeim kvöðum sem gerðar séu til þess að þessi möguleiki standi til boða.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK