Domino's hefur starfsemi í Noregi

Fyrsti Domino's-pítsustaðurinn í Noregi var opnaður um síðustu helgi en hann er staðsettur í hverfinu Lören í miðri Osló, höfuðborg landsins. Hverfið var áður iðnaðarhverfi en hefur nýlega verið endurskipulagt sem íbúðarhverfi.

Fram kemur í fréttatilkynningu að fjárfestarnir að baki opnun staðarins ætli sér þrjú ár til þess að koma Domino's í sterka markaðsstöðu í Noregi. Nokkrir fleiri staðir séu þegar á teikniborðinu en gert sé ráð fyrir að þeir geti orðið allt að fimmtíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK