Uppsagnir hjá Icelandair

Icelandair hefur sagt upp starfi sextíu og fjögurra flugmanna og taka þær uppsagnir gildi þann 1. október næstkomandi. Það eru flugmenn sem ráðnir voru til starfa árin 2012-2014 sem þurfa að fara í vetraruppsögn að þessu sinni. Jafnframt hefur stöðum þrjátíu og sex flugstjóra verið sagt upp og færast þeir í sæti flugmanns þann sama dag. 

Þetta kemur fram í fréttabréfi Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Þar segir einnig að á sama tíma sé Icelandair að tilkynna um aukningu á flugi næsta sumar og megi því reikna með að komi til nýráðninga flugmanna í vetur, fyrir sumarið.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK