Festir kaup á 27 farþegaþotum

AFP

Breska lággjaldaflugfélagið easyJet gekk í dag frá kaupum á 27 farþegaþotum af gerðinni A320. Fram kemur í frétt AFP að miðað við listaverð flugvélaframleiðandans Airbus kosta þoturnar rúmlega tvo milljarða dollara.

Farþegaþoturnar verða afhenta á tímabilinu 2015-2018. Fram kemur í yfirlýsingu frá easyJet að fyrirtækið hafi náð fram umtalsverðum afslætti frá listaverðinu. Upphaflega var tilkynnt um pöntun easyJet á þotunum árið 2002.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK