Hagvöxtur ekki meiri frá 2007

Landsframleiðsla jókst að raungildi um 3,5% á árinu 2013 samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Hagvöxtur hefur ekki verið meiri frá árinu 2007 og landsframleiðsla ekki hærri að raungildi frá árinu 2008. Utanríkisverslun dregur hagvöxtinn áfram samkvæmt tölum Hagstofunnar þar sem þjóðarútgjöld á árinu 2013 hafi dregist lítillega saman eða um 0,3%.

„Einkaneysla og samneysla jukust hvor um sig um 0,8% en fjárfesting dróst saman um 2,2%. Útflutningur jókst um 6,9% og á sama tíma jókst innflutningur um 0,4% þannig að verulegur afgangur varð af vöru- og þjónustuviðskiptum á liðnu ári, eða 156 milljarðar króna. Halli á launa- og fjáreignatekjum frá útlöndum minnkaði verulega á síðasta ári samkvæmt tölum Seðlabankans. Það ásamt afgangi af vöru- og þjónustuviðskiptum leiddi til jákvæðs viðskiptajafnaðar í fyrsta sinn frá árinu 2002. Hann nam rúmum 121 milljarði króna, 6,5% af landsframleiðslu á árinu 2013 og hefur afgangurinn sem hlutfall af landsframleiðslu aldrei verið meiri.“

Hins vegar kemur fram að viðskiptakjör hafi versnað um 1,1% á árinu 2013 en hin miklu umskipti á viðskiptajöfnuði milli ára hafi orðið til þess að þjóðartekjur hafi aukist mun meira en sem nam vexti landsframleiðslu eða um 11,2%. „Innleiðing nýs þjóðhagsreikningastaðals, ESA2010, og aðrar endurbætur sem gerðar eru á þjóðhagsreikningum nú, aftur til 1997, leiða til hækkunar á fjárhæð landsframleiðslu. Meðalhækkun á ári á tímabilinu er 3,6% en árið 2012 var viðbótin 4,4%. Áhrifin á hagvöxt eru mun minni eða að meðaltali 0,3% á ári. Árið 2012 dróst hagvöxtur saman um 0,3%.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK