Halla Bergþóra ráðin til Norðurorku

Halla Bergþóra Halldórsdóttir
Halla Bergþóra Halldórsdóttir

Halla Bergþóra Halldórsdóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri þjónustu- og fjármálasviðs hjá Norðurorku hf.

Halla er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands (sérsvið, endurskoðun og reikningshald). Starfsreynsla Höllu er tengd fjármálastörfum af ýmsum toga. Hún hefur starfað hjá PricewaterhouseCoopers við endurskoðunarstörf og rekstrarstjórnun, fyrst 2000-2004 og síðan aftur 2012-2014. Halla var forstöðumaður fjármála hjá Verði vátryggingum 2004-2007 og síðan forstöðumaður fjármálasviðs Saga Capital 2007-2011. Árið 2012 tók Halla að sér tímabundið starf sparisjóðsstjóra Sparisjóðs Þórshafnar, en hún hefur starfað í endurskoðunarnefnd sjóðsins.

Halla var valin úr hópi 39 umsækjenda um stöðuna.

Halla er gift Brynjari Bragasyni verkfræðingi og eiga þau tvo syni. 

Halla mun hefja störf hjá Norðurorku hf. um næstu mánaðamót.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK