Segir tjónið nema 200 milljónum króna

Ólafur M. Magnússon, framkvæmdatstjóri Mjólkurbúsins Kú.
Ólafur M. Magnússon, framkvæmdatstjóri Mjólkurbúsins Kú. mbl.is/Eyþór

Beint fjárhagslegt tjón sem Mjólkurbúið Kú og Mjólka hafa orðið fyrir á árunum 2008 til 2014 vegna viðskiptahátta Mjólkursamsölunnar, sem Samkeppniseftirlitið sektaði í dag um 370 milljónir króna fyrir að misnota markaðsráðandi stöðu sína, nemur um 200 milljónum króna. 

Þetta kemur fram í tilkynningu, sem Ólafur M. Magnússon, framkvæmdastjóri Mjólkurbúsins, hefur sent frá sér. Hann segir að fyrirtækið muni gera kröfu um að fá þetta bæt. 

Hann segir, að MS hafi brotið alvarlega gegn 11. gr. samkeppnislaga með því að misnota markaðsráðandi stöðu sína gagnvart Mjólkurbúinu Kú og Mjólku á umræddum árum.

Tekið er að fram að málinu hafi verið beint til Samkeppniseftirlitsins í upphafi árs 2012 og er því fagnað að eftirlitið hafi staðfest að umkvartanir og ábendingar um brot á samkeppnislögum hafi átt við rök að styðjast.

„Beint fjárhagslegt tjón sem Mjólkurbúið Kú og Mjólka hafa orðið fyrir á árunum 2008 til 2014 vegna þessara ólöglegu viðskiptahátta MS nemur um 200 milljónum króna. Þetta tjón munum við að sjálfsögðu gera kröfu um að fá bætt.

Um leið og úrskurður Samkeppniseftirlitsins er til þess fallin að styrkja frjáls og heiðarleg viðskipti er hann dapurlegur vitnisburður um óásættanleg vinnubrögð stjórnenda MS,“ segir í tilkynningunni.

„Íslenskur mjólkuriðnaður og mjólkurframleiðendur í landinu eiga betra skilið en að þurfa enn eina ferðina að horfa upp á þeirra eigið fyrirtæki staðið að alvarlegum lögbrotum. Óskandi er að stjórnendur MS dragi réttan lærdóm af áfellisdómi Samkeppniseftirlitsins. Fyrstu viðbrögð þeirra við úrskurðinum valda hins vegar vonbrigðum og benda til þess að enn skorti á jarðsamband og raunveruleikatengsl æðstu stjórnenda MS.

Vert er að benda á að MS er að mestu leyti undanþegið Samkeppnislögum. Í ljósi þess að fyrirtækið og forveri þess, Osta og smjörsalan, hafa ítrekað verið staðin að brotum á þeim takmarkaða hluta sem Samkeppnislög ná til, hljótum við að gera kröfu um að undanþágur MS frá Samkeppnislögum verði afnumdar með öllu þannig að mjólkuriðnaðurinn búi við sömu samkeppnisaðstæður og annar fyrirtækjarekstur hér á landi,“ segir ennfremur.

MS greiði 370 milljónir í sekt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK