Verðlagt í samræmi við opinbera verðskrá

Niðurstaða Samkeppniseftirlitsins, sem birt var í dag um að verðlagning á mjólk í lausu máli til fyrirtækjanna Mjólku og Kú standist ekki samkeppnislög, kemur Mjólkursamsölunni mjög á óvart. Fyrirtækið telur sig í einu og öllu hafa farið að búvörulögum og samkeppnislögum í starfsemi sinni og telur að ekkert í gögnum málsins bendi til annars. Þetta segir í tilkynningu frá MS.

„Hér er um að ræða ólíka túlkun fyrirtækisins og Samkeppniseftirlitsins á skilmálum búvörulaga og samkeppnislaga. Niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins verður þegar í stað áfrýjað til áfrýjunarnefndar samkeppnismála,“ segir í tilkynningunni.

„Mjólkursamsalan, sem er félag í beinni og óbeinni eigu kúabænda á Íslandi, bendir á að í úrskurðinum eru lögð að jöfnu tvenns konar ólík viðskipti. Annars vegar er um að ræða sölu á mjólk í lausu máli til óskylds aðila, fyrirtækisins Kú, í samræmi við verðskrá sem ákveðin er af verðlagsnefnd búvöru. Hins vegar miðlun á mjólk í framleiðslusamstarfi milli Mjólkursamsölunnar, Kaupfélags Skagfirðinga og Mjólku sem er dótturfélag kaupfélagsins. Samkeppniseftirlitið hafði þegar skilgreint þessi þrjú síðarnefndu fyrirtæki sem einn viðskiptaaðila við samruna Kaupfélags Skagfirðinga og Mjólku 2009. Mjólkursamsalan hefur talið að sá úrskurður skilgreini réttarstöðu félagsins í þessu máli.

Svo virðist að með þessum stjórnsýsluúrskurði hafi Samkeppniseftirlitið ákveðið að láta reyna á lagagrein í búvörulögum sem heimilar samvinnu og samstarf fyrirtækja í atvinnugreininni með það markmið að ná fram hagræðingu neytendum til hagsbóta. Þetta er í raun undanþáguheimild frá afmörkuðum ákvæðum samkeppnislaga. Hagur neytenda hefur síðan verið tryggður með því að fyrirtækin, sem þannig mega starfa saman, hafa ekki sjálf vald yfir verðlagningu eigin framleiðslu. Samkeppniseftirlitið hefur ítrekað og opinberlega lýst andstöðu sinni við þessa lagagrein og þannig að mati fyrirtækjanna, sem hlut eiga að máli, reynt að hafa áhrif á löggjafann. Fyrirtækin telja sig hins vegar í einu og öllu hafa starfað í samræmi við þann lagaramma sem fyrirtækjunum er settur í búvörulögum og samkeppnislögum.“

Frétt mbl.is: MS greiði 370 milljónir í sekt

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK