Bætast í eigendahóp Íslensku lögfræðistofunnar

Arnar Kormákur Friðriksson (t.v.) og Ómar Örn Bjarnþórsson eru nýir …
Arnar Kormákur Friðriksson (t.v.) og Ómar Örn Bjarnþórsson eru nýir eigendur á Íslensku lögfræðistofunni.

Héraðsdómslögmennirnir Arnar Kormákur Friðriksson og Ómar Örn Bjarnþórsson hafa bæst í eigendahóp Íslensku lögfræðistofunnar og eru eigendur stofunnar því orðnir fjórir talsins. Fyrir eru þeir Haukur Örn Birgisson hrl. og Eggert Páll Ólason hdl.

Íslenska lögfræðistofan er með skrifstofu í Turninum við Smáratorg í Kópavogi, að því er segir í tilkynningu.

Ómar Örn hefur starfað hjá Íslensku lögfræðistofunni frá 2009 en Arnar Kormákur starfaði hjá Opus lögmönnun frá árinu 2008 áður en hann gekk til liðs við stofuna. Ómar Örn og Arnar Kormákur hafa báðir mikla reynslu af málflutningsstörfum og hafa annast hagsmunagæslu fyrir einstaklinga og fyrirtæki við góðan orðstír.

Íslenska lögfræðistofan hefur frá stofnun sinnt almennri lögfræðiráðgjöf og hagsmunagæslu fyrir einstaklinga, fyrirtæki, stofnanir og erlenda aðila. Undanfarin misseri hefur vaxandi áhersla verið lögð á ráðgjöf til fyrirtækja. Þrír löglærðir fulltrúar starfa hjá fyrirtækinu ásamt eigendunum fjórum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK