Bandaríski netrisinn eBay samþykki í dag að verða við kröfum hlutahafa fyrirtækisins um að færa rekstur greiðsluþjónustunnar PayPal í sérstakt fyrirtæki frá næstu áramótum. Núverandi hluthafar í eBay munu fá hlutabréf að sama skapi í nýju fyrirtæki í kringum PayPal.
Fram kemur í frétt AFP að breytingin muni auka verðmæti eBay til lengri tíma litið. Orðrómur um að til stæði að aðskilja rekstur PayPal frá eBay hefur verið í gangi frá því í lok sumars. Samkvæmt yfirlýsingu frá eBay varð það niðurstaðan eftir vandlega athugun á ýmsum kostum í stöðunni.
Stefnt er að því að breytingin yrði komin að fullu til framkvæmda á síðari helming næsta árs. 41% af tekjum eBay á síðasta ári komu í gegnum starfsemi PayPal. Notendur greiðsluþjónustunnar eru yfir 152 milljón talsins.