Óbreyttir vextir í tvö ár

Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands mbl.is/Ómar Óskarsson

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Vext­ir hafa verið óbreytt­ir allt frá því í nóv­em­ber 2012 og verða því óbreyttir í tvö ár hið minnsta þar sem næsti vaxtaákvörðunardagur er þann 5. nóvember nk.

Nokkuð dró úr hagvexti á fyrri hluta ársins en þróunin var þó í meginatriðum í samræmi við ágústspá Peningamála, að því er segir í yfirlýsingu peningastefnunefnd bankans.

Horfur á minni verðbólgu en spáð var

„Verðbólga, sem mælist nú 1,8%, hefur verið undir markmiði í átta mánuði samfleytt og horfur eru á minni verðbólgu næstu mánuði en spáð var í ágúst. Verðbólguvæntingar hafa þokast nær markmiði að undanförnu en langtímavæntingar eru enn nokkuð yfir því. Gjaldeyrisinnstreymi hefur haldið áfram en gjaldeyrisviðskipti Seðlabankans hafa stuðlað að stöðugleika krónunnar.

Aðhald peningastefnunnar hefur aukist meira en áður var búist við samfara hraðari hjöðnun verðbólgu og lækkun verðbólguvæntinga. Nokkur óvissa er þó um túlkun haggagna sakir breyttra uppgjörsaðferða þjóðhagsreikninga sem eykur tímabundið vandann við mat á æskilegu taumhaldi peningastefnunnar. Kröftugur vöxtur innlendrar eftirspurnar á komandi misserum og vaxandi spenna á vinnumarkaði gætu eftir sem áður leitt til aukins verðbólguþrýstings og orðið til þess að nafnvextir Seðlabankans þyrftu að hækka.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK