Sala lúxusbíla hefur aukist um 30,5% milli ára

Mercedes-Benz C-Klasse.
Mercedes-Benz C-Klasse. mbl.is/afp

Sala á lúxusbílum á fyrstu níu mánuðum ársins var 30,5% meiri en í fyrra. Þannig seldust alls 514 lúxusbílar á tímabilinu en 394 í fyrra.

Til samanburðar seldust 524 lúxusbílar þessa mánuði 2000, 613 árið 2001, 386 árið 2002, 332 árið 2003, 462 árið 2004 og 549 árið 2005. Salan 2006 til 2008 var mun meiri, eða frá 1.031 til 1.353 lúxusbíll.

Séu bílaleigubílar undanskildir seldust 369 lúxusbílar á fyrstu níu mánuðum ársins og er það 10,8% aukning frá fyrra ári. Það er jafn mikil sala og 2002, svo dæmi sé tekið, en minni sala en 2004 til 2008, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK