Minni loðnuafli hægir á hagvexti

Minni loðnuafli hefur áhrif á hagvöxt næstu mánaða.
Minni loðnuafli hefur áhrif á hagvöxt næstu mánaða. mbl.is/Rax / Ragnar Axelsson

Leiðandi hagvísir Analytica hækkaði í september en líkt og fyrri mánuði gefur hagvísirinn nú vísbendingu um að hægja kunni á hagvexti næstu mánuði. Helstu ástæður þess að hagvísirinn gefur til kynna mögulegan minni hagvöxt eru tvær: Aðallega tafin áhrif minni loðnuafla en einnig minni fjölgun ferðamanna eftir að tillit er tekið til árstíðasveiflu. Er hækkunin nú alfarið rakin til aflabreytinga.

Hagvísirinn er vísitala sem gefur vísbendingu um efnahagsumsvif að sex mánuðum liðnum. Það er hlutverk vísitölunnar að veita skýra sýn á efnahagshorfur og vara tímanlega við viðsnúningi í efnahagsumsvifum. Vísitalan er reiknuð á grundvelli sömu aðferðafræði og annars staðar þar sem sambærilegar vísitölur eru reiknaðar en sérstaklega er tekið mið af verklagi OECD.

Leiðandi hagvísir Analytica er samansettur úr sex undirþáttum af mismunandi toga. Um er að ræða aflamagn, debetkortaveltu, ferðamannafjölda, heimsvísitölu hluta-bréfa, innflutning og væntingavísitölu Gallup. Í september hækka fimm undirþættir af sex frá fyrra ári, hið sama og í ágúst. Frá í ágúst lækka hins vegar fimm af sex undirþáttum.

Hugmyndin að baki vísitölunni er sú að framleiðsla hefur aðdraganda. Vísitalan er reiknuð á grundvelli þátta sem mælast í upphafi framleiðsluferilsins og/eða veita vísbendingar um eftirspurn eftir vörum og þjónustu. Til að unnt sé að auka framleiðslu þarf t.d. að afla aðfanga og stofna til fjárfestinga.

Leiðandi hagvísir Analytica hækkar um 0,2% í september og tekur gildið 101,1.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK