Ari Skúlason, hagfræðingur hjá Landsbankanum, segir töluverða forræðishyggju endurspeglast í kröfu Íbúðalánasjóðs um að 400 eignir, sem sjóðurinn setti í söluferli í síðustu viku, haldist áfram á leigumarkaði.
Svo virðist sem sjóðurinn sé að þjóna því pólitíska markmiði að byggja upp leigumarkað á Íslandi.