Heildarhagnaður Nýherjasamstæðunnar á þriðja ársfjórðungi nam 12 milljónum króna. Hagnaður fyrstu níu mánaða ársins nemur 137 milljónum króna, en á sama tíma í fyrra nam tapið fyrstu níu mánuði ársins 1,1 milljarði króna.
EBITDA nam 188 milljónum kr. á þriðja ársfjórðungi og 586 milljónir fyrstu níu mánuði ársins.
„Jákvæð umskipti hafa orðið á afkomu Nýherjasamstæðunnar á árinu, en 137 mkr hagnaður er á starfseminni fyrstu 9 mánuði ársins í stað ríflega eins milljarðs króna taps í fyrra. Hagnaður var 12 mkr á þriðja ársfjórðungi, sem er undir væntingum en reksturinn á fyrstu 9 mánuðum ársins er á áætlun," segir Finnur Oddsson, forstjóri Nýherja í tilkynningu.
Helstu upplýsingar
„Ágætur gangur var í rekstri móðurfélags Nýherja, á þriðja ársfjórðungi. Sala á tölvu- og tæknibúnaði var í heild yfir áætlun. Sala á Lenovo tölvum hefur vaxið töluvert síðustu misseri en tæplega tíu þúsund tölvur hafa verið seldar til fyrirtækja og einstaklinga það sem af er ári. Tekjur TM Software vaxa enn verulega á milli ára, einkum vegna mikils vaxtar í sölu á Tempo hugbúnaði sem nú stendur á bak við 44% af veltu félagsins," segir Finnur. Afkoma Applicon félaganna sé undir áætlun, sem skýrist meðal annars af hærri þróunarkostnaði á þriðja ársfjórðungi heldur en áætlanir gerðu ráð fyrir. Ágætis horfur séu hjá Applicon félögunum fyrir fjórða ársfjórðung.
"Nýtt skipulag fyrir Nýherja móðurfélag hefur tekið gildi, en því er ætlað að einfalda starfsemi félagsins, bæta þjónustu og efla sölustarf. Áfram verður unnið að bættu skipulagi og skilvirkari uppbyggingu samstæðunnar, með það að markmiði að bæta afkomu og styrkja eiginfjárstöðu félagsins,“ segir Finnur ennfremur.