Engin verðbólga í október

Verðbólgan í október var engin þrátt fyrir að vísitala neysluverðs hafi hækkað um 0,14% milli mánaða. Skýringin er sú að áhrif vegna lækkunar flugfargjalda voru ofmetin í vísitölu síðasta mánaðar um 0,17%. Verðbólgan síðustu 12 mánuði er 1,9% og hefur verið undir verðbólgumarkmiði Seðlabankans í 10 mánuði samfleytt.

Verðlag er nú stöðugra en í heilan áratug og ef hækkanir á húsnæði eru undanskildar er verðlag óbreytt frá því í desember 2013, segir í frétt um málið á vef Samtaka atvinnulífsins. Verðbólga hefur verið að minnka undanfarna mánuði og ef horft er til síðustu fjögurra mánaða er verðbólgan aðeins 1% á ársgrundvelli. Verðbólguvæntingar hafa jafnframt hjaðnað mikið.

„Þetta eru góðar fréttir því á sama tíma hefur tekist að auka kaupmátt launa eins og að var stefnt í síðustu kjarasamningum,“ segir í frétt Samtaka atvinnulífsins.

Fyrir ári síðan hvöttu Samtök atvinnulífsins til þess að  launahækkanir yrðu sambærilegar og í nágrannalöndunum. „Þannig væri stuðlað að stöðugu verðlagi og aukningu kaupmáttar launa í hægum en öruggum skrefum, eins og annars staðar á Norðurlöndum, en ekki með þeim öfgafullu sveiflum sem tíðkast hafa hér á landi. Með samhentu átaki aðila á vinnumarkaði, stjórnvalda, fyrirtækja og starfsfólks hefur þetta tekist.

Þessi árangur ber þess órækt vitni að innleiðing nýrra vinnubragða á vinnumarkaði er nauðsynleg til að tryggja þann mikla ávinning sem allir landsmenn njóta góðs af.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK