Ennþá litla félagið á markaði

Liv tekur sjálfsmynd með nýjustu tækni, sjálfsmyndarstönginni.
Liv tekur sjálfsmynd með nýjustu tækni, sjálfsmyndarstönginni. mbl.is/Golli

Nova varð á fáum árum næststærsta farsímafyrirtæki landsins og með mestan flutning gagnamagns í farsímakerfi. Gagnamagnsflutningar Nova hafa fjórfaldast frá því á síðasta ári og á sama tíma hafa önnur símafyrirtæki tvöfaldað sína.

Samkvæmt nýrri tölfræðiskýrslu Póst og fjarskiptastofnunar fara 75% af öllum gögnum sem flutt eru um farsímanet á Íslandi í gegnum kerfi Nova.

Í samtali í Viðskiptamogganum í dag telur  Liv Bergþórsdóttir, forstjóri Nova, ástæðuna einfalda: „Viðskiptavinir okkar eru óhræddir við að nota netið meira í dag en það ræðst auðvitað af gæðum kerfisins og verðlagningu.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK