Þjóðskrá Íslands annast útgáfu vegabréfa auk nokkurra annarra skilríkja og vekja starfsmenn hennar athygli á því að 1. mars 2013 var gildistími vegabréfa lengdur úr fimm árum í tíu ár.
Samkvæmt niðurstöðu könnunar sem tímaritið Good lét framkvæma á árinu kemst þú sem handhafi íslensks vegabréfs kemst þú til alls 165 landa án vegabréfsáritunar. Víðast án vegabréfsáritunar komast þeir sem hafa finnsk, sænsk eða bresk skilríki, eða til 173 landa. Íslendingar eiga að geta komist til allra landa innan Schengen án vegabréfs, auk Norðurlandanna vegna sérstaks samnings landanna. Hins vegar er slíkt ekki áhættulaust, því sum flugfélög gera kröfu um að farþegar sýni vegabréf sitt sem skilríki.