Eignir Arion nema 942 milljörðum króna

Arion banki.
Arion banki. mbl.is/Kristinn

Hagnaður Arion banka á fyrstu níu mánuðum ársins 2014 nam 22,6 milljörðum króna eftir skatta samanborið við 10,1 milljarð króna á sama tímabili 2013. Arðsemi eigin fjár var 19,9% samanborið við 10,0% á sama tímabili árið 2013 og heildareignir námu 942,2 milljörðum króna samanborið við 938,9 milljarða króna í árslok 2013.

Þetta kemur fram í ársfjórðungsuppgjöri félagsins sem birt var í dag.

Eiginfjárhlutfall bankans í lok tímabilsins var 24,6% en var 23,6% í árslok 2013. Hagnaður eftir skatta nam 22,6 mö.kr. samanborið við 10,1 ma.kr. á sama tímabili 2013. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi nam 5,2 mö.kr. samanborið við 4,2 ma.kr. á þriðja ársfjórðungi 2013.

6,5 milljarðar í tekju- og bankaskatta

Rekstrartekjur hækka á milli ára og námu 38,3 mö.kr. samanborið við 31,6 ma.kr. á sama tímabili árið 2013. Mesta hækkunin er í hreinum fjármunatekjum. Hreinar vaxtatekjur námu 18,3 mö.kr. og eru óbreyttar frá sama tímabili 2013. Hreinar þóknanatekjur námu 10,1 ma.kr. samanborið við 8,3 ma.kr. á sama tímabili 2013. Aukningin er einkum tilkomin vegna hærri þóknanatekna af greiðslukortum og af starfsemi fjárfestingarbankasviðs.

Tekju- og bankaskattar námu samtals 6,5 mö.kr. samanborið við 3,1 ma.kr. á sama tímabili 2013. Hagnaður af aflagðri starfsemi nam 6,6 mö.kr. samanborið við 3 m.kr. tap á sama tíma 2013. Hagnaðurinn er nær eingöngu tilkominn vegna sölu á 18,8% eignarhlut bankans í HB Granda hf. á öðrum ársfjórðungi 2014. Rekstrarkostnaður nam 18,6 mö.kr. samanborið við 18,2 ma.kr. á sama tímabili 2013.

Hrein virðisbreyting er jákvæð á tímabilinu og nemur 2,9 mö.kr. samanborið við 119 m.kr. gjaldfærslu á sama tímabili 2013. Virðisaukning útlána til fyrirtækja nemur 2,2 mö.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins. Þá nemur hrein virðisrýrnun útlána til einstaklinga 0,2 mö.kr. á sama tímabili. Virðisaukning annarra eigna nemur 0,7 mö.kr. á tímabilinu.

Arðsemi eigin fjár var 19,9% en var 10,0% á sama tímabili 2013. Vaxtamunur af meðalstöðu vaxtaberandi eigna var 2,9% eða óbreyttur frá sama tímabili árið 2013. Kostnaðarhlutfall var 48,7% en var 57,6% á sama tímabili 2013 og kemur einkum til af hærri rekstrartekjum. Heildareignir námu 942,2 mö.kr., samanborið við 938,9 ma.kr. í árslok 2013. Eigið fé bankans var 159,8 ma.kr. en nam 144,9 mö.kr. í lok árs 2013. Bankinn greiddi arð til hluthafa sinna á öðrum ársfjórðungi upp á 7,8 ma.kr. Eiginfjárhlutfall nam 24,6% í lok tímabilsins samanborið við 23,6% í árslok 2013.

Sterkt uppgjör

„Afkoma bankans fyrstu níu mánuði ársins er góð. Þetta er sterkt uppgjör og er arðsemi bankans á tímabilinu rétt um 20%. Vissulega er það svo að óreglulegir liðir hafa jákvæð áhrif á uppgjörið og vegur þar þyngst sala bankans á hlut í HB Granda og skráning félagsins á markað í apríl,“ er haft eftir Höskuldi H. Ólafssyni, bankastjóra, í tilkynningu.

„Við erum ánægð að sjá áframhaldandi stöðugleika í grunnrekstri bankans og eru allar tekjuskapandi einingar bankans að skila ágætri afkomu. Ég er sérstaklega ánægður með þann árangur sem hefur náðst á sviði þóknanatekna sem vaxa um 22% á milli ára og færast nær okkar markmiðum. Horft fram á veg eru þó áfram áskoranir á kostnaðarhliðinni,“ segir Höskuldur.

Hann segir eiginfjárhlutfall banks vera áfram sterkt sem teljist afar mikilvægt því enn séu óvissuþættir í starfsumhverfinu. „Við náum árangri í að lækka hlutfall vandræðalána og sjáum fram á enn frekari lækkun á árinu. Víða erlendis er hlutfall vandræðalána að hækka en þróunin hér á landi á undanförnum árum hefur verið jákvæð og helst í hendur við lækkandi skuldsetningu heimila og fyrirtækja, en skuldsetning fyrirtækja sem hlutfall af vergri landsframleiðslu hefur ekki verið lægri síðan síðla árs 2004,“ segir Höskuldur.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka.
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK