Til Íslands frá Munchen og Frankfurt

Vél Lufthansa tekur á loft.
Vél Lufthansa tekur á loft. AFP

Þýska flugfélagið Lufthansa hefur opnað nýja flugleið til Íslands frá Munchen. Flogið verður þaðan til Keflavíkur alla laugardaga frá lokum maí og fram í byrjun september. Í lok október tilkynnti félagið að einnig yrði flogið til Íslands frá Frankfurt tvisvar sinnum í viku.

Í frétt Túrista kemur fram að í byrjun haustsins hefði verið útlit fyrir að  Íslandsflug Lufthansa heyrði sögunni til þar sem dótturfélag þess, German Wings, hafði tekið yfir allar ferðir félagsins hingað til lands.

Lufthansa er mjög umsvifamikið á þessum tveimur stærstu flugvöllum Þýskaland en hefur hingað til aðeins boðið upp á Íslandsferðir frá Dusseldorf, Hamborg og Berlín. En eins og áður segir hefur German Wings tekið þær flugleiðir yfir.

Christian Schindler, framkvæmdastjóri hjá Lufthansa, sagði í svari til Túrista að það væri mikið ánægjuefni að geta boðið farþegum félagsins á Íslandi upp á beint flug til helstu hafna félagsins í Frankfurt og Munchen. „Þessar nýju flugleiðir eru beint svar við óskum farþega og við höfum tryggt að flugáætlunin bjóða upp á mjög góðar tengingar við bæði leiðakerfi okkar í Evrópu og annars staðar í heiminum,“ sagði hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK