Ríkið greiðir 66,8 milljónir í málskostnað

Sigurður G. Guðjónsson, verjandi Sigurjóns Árnasonar, fær greiddar 39 milljónir …
Sigurður G. Guðjónsson, verjandi Sigurjóns Árnasonar, fær greiddar 39 milljónir í málsvarnarlaun. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Alls falla um 66,8 milljónir króna á ríkið í málsvarnarkostnað vegna markaðsmisnotkunarmálsins svonefnda gegn Landsbankamönnum. Dómur féll í málinu í morgun þar sem þrír af fjórum ákærðu voru sakfelldir. Þeirra á meðal er Sigurjón Árnason, fyrrverandi bankastjóri bankans. Heildarmálskostnaður nemur um 118 milljónum króna.

Málsvarnarlaun lögmanna Sigurjóns, Ívars Guðjónssonar, fyrrum forstöðumanns eig­in fjár­fest­inga bankans og Júlíusar Steinars Harðarsonar, starfsmanns deildarinnar, sem allir voru sakfelldir í málinu, verða greidd af hálfu úr ríkissjóði. Málsvarnarlaun verjanda Sindra Sveinssonar, fyrrum starfsmanns eig­in fjár­fest­inga bank­ans, sem sýknaður var í málinu, verða greidd að fullu úr ríkissjóði.

Sigurjón þarf að greiða 19,5 milljónir

Sigurður G. Guðjónsson var verjandi Sigurjóns í málinu og nemur reikningur hans rúmum 39 milljónum króna með virðisaukaskatti. Sagði hann upphæðina þó vera nokkuð hærri við aðalmeðferð málsins, eða 46 milljónir króna, fyrir utan virðisaukaskatt, þar sem hann hefði varið um 2.200 vinnustundum í málið. Falla alls um 19,5 milljónir króna á ríkið vegna Sigurjóns.

Reikningur verjanda Ívars, Jóhannesar Rúnars Jóhannssonar, nemur þá tæpum 44 milljónum króna og falla þar um 22 milljónir króna á ríkið. 

Helgi Sigurðsson var verjandi Júlíusar en reikningur hans nemur rúmum 19 milljónum króna. Þá nemur þóknun annarra verjenda hans á rannsóknarstigi málsins alls um 843 þúsund krónum. Tæpar 10 milljónir verða því greiddar úr ríkissjóði í málsvarnarlaun vegna þessa.

Þá verða málsvarnarlaun verjanda Sindra, Reimars Péturssonar, auk annarra verjenda á rannsóknarstigi, að fullu greidd úr ríkissjóði. Nemur reikningurinn alls um 14,8 milljónum króna. 

Handstýrðu verðmyndun hlutabréfa

Fjórmenningarnir voru ákærðir fyrir markaðsmis­notk­un á tíma­bil­inu 1. nóv­em­ber 2007 til 3. októ­ber 2008. Voru þeir sakaðir um að hafa hand­stýrt verðmynd­un hluta­bréfa í Lands­bank­an­um og með því blekkt fjár­festa, kröfu­hafa, stjórn­völd og sam­fé­lagið í heild. Í niður­stöðu héraðsdóms kem­ur fram að viðskipt­in sem um ræðir hafi verið fram­kvæmd að und­ir­lagi Sig­ur­jóns og var hann því sak­felld­ur.

Líkt og áður hefur komið fram var Sig­ur­jón dæmd­ur í 12 mánaða fang­elsi, þar af voru níu mánuði skil­orðbundnir. Þeir Ívar og Júlíus voru dæmdir í níu mánaða fangelsi en þar af voru sex mánuðir skilorðsbundnir. Sindri var sýknaður.

Dómur féll í markaðsmisnotkunarmálinu í morgun.
Dómur féll í markaðsmisnotkunarmálinu í morgun. mbl.is/Hjörtur
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK