Friðrik úr Harvard í Rétt

Friðrik Ársælsson.
Friðrik Ársælsson.

Friðrik Ársælsson hefur hafið störf hjá lögmannsstofunni Rétti – Aðalsteinsson & Partners ehf., en hann útskrifaðist með LLM gráðu frá Harvard Law School í vor. Friðrik lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2009 og öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi ári seinna. Hann starfaði hjá embætti sérstaks saksóknara árin 2011-2013 og hjá LOGOS frá 2008 til 2010.

Í fréttatilkynningu kemur fram að Friðrik stundaði nám við Harvard Law School sem Fulbright og Frank Boas styrkþegi með áherslu á félagarétt, fjármögnun og stjórnarhætti hlutafélaga. Þá er Friðrik stundakennari við Háskóla Íslands og kennir meðal annars í námskeiðunum opinbert markaðseftirlit, og félagaréttur og fjármálamarkaðir á meistarastigi. Friðrik er meðhöfundur bókarinnar Opinbert markaðseftirlit,, sem kom út hjá CODEX bókaútgáfu árið 2012.

Helstu starfs­svið Friðriks eru fjármuna- og fyrirtækjaréttur, gjaldþrotaréttur, skaðabóta­rétt­ur og stjórn­sýslu­rétt­ur auk málflutnings og verj­enda­starfa.

Hjá Rétti starfa nú níu lög­menn og eru eig­end­ur fjórir, þar af tveir með mál­flutn­ings­rétt­indi fyr­ir Hæsta­rétti en stofan var stofnuð af Sigríði Rut Júlíusdóttur og Ragnari Aðalsteinssyni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK