Leigja út 400 íbúðir

Almenna leigufélagið býður íbúðir á höfuðborgarsvæðinu til leigu.
Almenna leigufélagið býður íbúðir á höfuðborgarsvæðinu til leigu. mbl.is/Ómar Óskarsson

Almenna leigufélagið er nýtt félag sem tekið hefur til starfa. Félagið hefur umsjón með rekstri tæplega 400 leiguíbúða á höfuðborgarsvæðinu. Markmið félagsins er að gera leigu að raunhæfum langtímakosti á húsnæðismarkaði.
 
Í fréttatilkynningu segir að Almenna leigufélagið bjóði örugga langtímaleigu, sveigjanleika og hátt þjónustustig. 
 
„Með langtíma leigusamningum, til allt að þriggja ára í senn, njóta viðskiptavinir félagsins húsnæðisöryggis og stöðugleika á leigumarkaði. Þá leggur félagið mikla áherslu á fagleg vinnubrögð og vinnur að öllu leyti eftir lögum og reglum þannig að réttur leigutaka sé virtur,“ segir í tilkynningunni.
 
Þá njóta leigutakar félagsins sveigjanleika ef upp kemur sú staða að þeir þurfi að stækka eða minnka við sig. Í slíkum tilfellum er reynt að finna íbúð fyrir leigutaka í heppilegri stærð, innan sama hverfis, til að röskun á högum fjölskyldunnar verði sem minnst. Þannig njóta leigutakar Almenna leigufélagsins forgangs á íbúðum félagsins í viðkomandi hverfi.
 
 Samstarf félagsins við öryggisfyrirtækið Securitas gerir félaginu kleift að bjóða upp á sólarhringsvakt alla daga ársins komi upp neyðartilvik á borð við rafmagnsbilun eða alvarlegan leka. Félagið vill með þessu leggja sérstaka áherslu á öryggi leigutaka og veita þeim bestu mögulegu þjónustu sem völ er á.
 
Þá býður Almenna leigufélagið stærri fjárfestum á íbúðamarkaði alhliða þjónustu í umsjón leiguíbúða svo sem auglýsingu íbúða, vali á leigutökum, gerð leigusamninga og umsjón með innheimtu.
 
Almenna leigufélagið tekur nú við umsýslu leiguíbúða sem áður voru í umsjón Leigufélags Íslands. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK