„Ekki er að sjá að samdráttur í starfsmannahaldi Ríkisútvarpsins hafi ennþá skilað sér í lægri launakostnaði fyrirtækisins. Þetta segir í minnisblaði um málefni RÚV sem Ríkisendurskoðun hefur sent fjárlaganefnd Alþingis.

Ekki er að sjá að samdráttur í starfsmannahaldi Ríkisútvarpsins hafi ennþá skilað sér í lægri launakostnaði fyrirtækisins. Þetta segir í minnisblaði um málefni RÚV sem Ríkisendurskoðun hefur sent fjárlaganefnd Alþingis.

Í minnisblaðinu er vikið að þeirri ákvörðun stjórnar RÚV að gera tilraun til að auka tekjur fyrirtækisins með því að leigja út skrifstofuhlutann. Segir að ásókn í hið lausa húsnæði virðist ekki mikil sem stendur.

Þá segir í minnisblaðinu í tilefni af fyrirspurn frá fjárlaganefnd að ekkert bendi til annars en að stjórn Ríkisútvarpsins hafi alltaf verið upplýst um afkomu, stöðu og horfur fyrirtækisins ásamt tillögum til aðgerða. Stjórn RÚV beri eins og stjórnir annarra félaga ábyrgð á rekstri fyrirtækisins ásamt útvarpsstjóra sem annist daglegan rekstur. Undan þeirri ábyrgð geti stjórnarmenn ekki vikist. Í minnisblaðinu kemur ennfremur fram að þrátt fyrir athugasemdir Fjársýslu ríkisins hafi RÚV ekki lagað reikningsár sitt til samræmis við ákvæði fjárreiðulaga. Ársreikningar RÚV fyrir síðustu tvö ár séu til en hafi ekki verið áritaðir. Vill Ríkisendurskoðun að það verði gert og um leið verði reikningsárið lagfært. Ekki náðist í útvarpsstjóra.“