HB Grandi selur hlut sinn í Stofnfiski

HB Grandi
HB Grandi Þórður

Undirritaður hefur verið kaupsamningur á milli HB Granda hf. og Benchmark Genetic Limited vegna kaupa hins síðarnefnda á öllum hlutum HB Granda hf. í Stofnfiski. Eignarhlutur HB Granda hf. í Stofnfiski hf. nemur 64,94% af hlutafé félagsins og va bókfært verð eignarhlutarins, samkvæmt ársreikningi HB Granda hf. vegna ársins 2013 skráð 7,1 milljón evra í árslok 2013.

Stofnfiskur hf. er stærsti framleiðandi á Íslandi á laxahrognum og er fyrirtækið auk þess leiðandi í kynbótum fyrir fiskeldi. Benchmark Genetics Ltd. var stofnað árið 2000 og er í eigu Benchmark Holding Plc. sem er skráð á UK AIM verðbréfamarkaðinn í Bretlandi, en félagið sérhæfir sig m.a. í líftæknilausnum á sviði fiskeldis og landbúnaðar.

Söluverð eignarhluta HB Granda hf. nemur um 1.858 milljónum íslenskra króna eða um 12 milljónum evra og miðast kaupin við að greitt verði fyrir eignarhlutinn með peningagreiðslu við móttöku hlutanna. Söluverð hlutanna getur þó hækkað nái Stofnfiskur hf. sölumarkmiðum sínum innan þriggja ára en hæst getur söluverð hlutanna numið 3.158 milljónum íslenskra króna.

Að auki verður rekstrarlán HB Granda hf. til Stofnfisks hf., sem nam um 8,6 milljónum evra í árslok 2013, greitt upp af hálfu Stofnfisks hf. í kjölfar sölunnar. Kaupsamningurinn er gerður með fyrirvara um endanlega fjármögnun Benchmark Genetics. Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að ekki sé þörf á að leita samþykkis Samkeppniseftirlitsins fyrir kaupunum þar sem tilkynningarviðmiðum samkeppnislaga sé ekki náð. Samkeppniseftirlitinu verður engu að síður upplýst um kaupin.

Frétt mbl: Ræða sölu á eignarhlut HB Granda í Stofnfiski

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK