Landsbankinn selur hlut sinn í Borgun

mbl.is/Hjörtur

Landsbankinn undirritaði í dag samning um sölu á 31,2% eignarhlut sínum í Borgun hf. Söluverð er 2.184 milljónir króna og stendur breiður hópur fjárfesta ásamt félagi á vegum stjórnenda Borgunar að kaupunum að því er segir í fréttatilkynningu.

„Borgun er leiðandi fyrirtæki í þróun og hagnýtingu lausna á sviði rafrænnar greiðslumiðlunar, en þessar breytingar hafa engin áhrif á viðskiptavini Borgunar eða rekstur félagsins. Kaupsamningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki eftirlitsaðila, í samræmi við lög,“ segir ennfremur.

Haft er eftir Steinþóri Pálssyni, bankastjóra Landsbankans, að undanfarin ár hafi Landsbankinn verið áhrifalaus minnihlutaeigandi í Borgun en Íslandsbanki átt meirihluta hlutafjár. Miklar takmarkanir séu á aðkomu Landsbankans sem hluthafa að starfsemi borgunar í samræmi við sátt sem gerð hafi verið við Samkeppniseftirlitið árið 2008.

„Ennfremur hefur það verið markmið samkeppnisyfirvalda að aðeins einn banki sé hluthafi í hverju greiðslukortafyrirtæki á hverjum tíma. Þessi staða var óviðunandi fyrir Landsbankann og því teljum við þetta vera farsæla úrlausn fyrir bankann, félagið og nýja eigendur.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK