Ná ekki að fjármagna risagróðurhús

Es­Bro hef­ur reist gróður­hús að svipaðri stærð áður í Þýskalandi …
Es­Bro hef­ur reist gróður­hús að svipaðri stærð áður í Þýskalandi og Úkraínu.

Óvissa er um framkvæmdir við risagróðurhús undir tómatrækt í Grindavík þar sem fjármögnun hefur ekki tekist en framkvæmdirnar eru taldar kosta um 40 til 50 milljónir evra eða um 7 milljarða íslenskra króna.

Mbl.is greindi frá því í janúar sl. að vonir stæðu til að hefja framkvæmdir strax í febrúar. Áætlað er að byggja tvö 7,5 hekt­ara gróður­hús auk þrjú þúsund fer­metra tengi- og þjón­ustu­bygg­ingar. Til þess að setja stærðina í samhengi má segja að gróðurhúsin muni þekja svipað stórt svæði og 20 fót­bolta­vell­ir.

Engir fjárfestar - engar framkvæmdir

Hol­lenska fyr­ir­tæk­ið Es­Bro stendur fyrir framkvæmdunum en Kristján Ey­steins­son, starfsmaður þess er umsjónarmaður verkefnisins. Hann segir að ekki sé búið að blása verkefnið af, en telur að það muni í það minnsta tefjast fram yfir áramót. „Það verður ekki hafist handa fyrr en allir samningar liggja fyrir. Sú vinna er enn í gangi hjá EsBro,“ segir hann. „En á meðan það liggja ekki fyrir undirritaðir samningar við fjárfesta gerist ekkert í framkvæmdum.“

Drög að orku­sölu­samn­ingi við HS orku upp á 32 mega­vött fyr­ir lýs­ingu og hit­un í gróður­hús­un­um liggur fyrir auk ívilnanasamnings vegna ný­fjár­fest­ing­ar við iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið. Ekki verður þó heldur gengið frá þeim fyrr en samningar við fjárfesta liggja fyrir.

Höftin eru Akkilesarhæll

Aðspurður hvers vegna fjármögnunin hafi tafist segir hann ýmislegt koma þar til og þar á meðal gjaldeyrishöftin. „Þau eru síst til þess fallin að liðka fyrir erlendri fjárfestingu. Þetta er bara Akkilesarhæll sem við Íslendingar þurfum að kljást við,“ segir Krisjtán.

Hann segir erlenda aðila þó hafa áhuga á Íslandi og telji það góðan stað til ræktunar grænmetis, meðal annars vegna hagstæðs orkuverðs. „En eitt er að landið sé spennandi og góður kostur. Aðstæðurnar þurfa að vera af sama tagi og umhverfið þarf að vera hagstætt,“ segir hann.

Spurður hvort líkur séu á að ekkert verði af verkefninu segir hann að áfram verði unnið að því en auðvitað hljóti að koma að því á einhverjum tímapunkti að menn hugsi sig um. „Það eiga engin fyrirtæki endalausan tíma í að reyna koma svona verkefni á kortið. Ef aðstæður reynast þeim ekki í hag verður ákvörðun tekin um að hætta við,“ segir hann. „En sú ákvörðun liggur ekki fyrir og er ekki í sjónmáli á þessum tímapunkti,“ segir Kristján.

Frétt mbl.is: Fram­kvæmd­ir við risa­gróður­hús í Grinda­vík á næsta leiti

Mynd úr deili­skipu­lagi Grinda­vík­ur sem sýn­ir lág­flugs­mynd af mögu­legri bygg­ingu.
Mynd úr deili­skipu­lagi Grinda­vík­ur sem sýn­ir lág­flugs­mynd af mögu­legri bygg­ingu.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK