Óvissu eytt á Flateyri og Þingeyri

Flateyri
Flateyri mbl.is/Sigurður Bogi

Þrjú fyrirtæki, Arctic Oddi ehf., Valþjófur ehf. og Vísir hf. hafa gert með sér samkomulag sem styrkir til langframa stoðir atvinnulífsins á Flateyri og Þingeyri og eyðir um leið þeirri óvissu sem verið hefur um atvinnustarfsemi á stöðunum að undanförnu.

Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu fyrirtækjanna þar sem segir að Arctic Oddi muni flytja starfsemi sína frá Flateyri í húsnæði sem var í eigu Vísis á Þingeyri. Þar mun fyrirtækið sinna vinnslu og pökkun á eldisfiski og sinna frekari uppbyggingu fyrir fiskeldi sitt. Starfsemin á Þingeyri kallar á um 15 störf í upphafi en þeim mun fjölga í hlutfalli við uppbyggingu fyrirtækisins.

20 störf skapast

Um 20 ársstörf skapast við vinnslu bolfisks á Flateyri þegar útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Valþjófur tekur við fasteignum og tækjum Artic Odda á staðnum. Fyrirtækið mun einbeita sér að fullvinnslu bolfisks, bæði frá Flateyri og Þingeyri.

Auk starfa hjá fyrirtækjunum tveimur má gera ráð fyrir að til verði nokkur fjöldi afleiddra starfa vegna margvíslegrar þjónustu við fyrirtækin. Þau störf leggja grunn að frekari atvinnuuppbyggingu á Vestfjörðum til lengri tíma litið.

Aðkomu Vísis lokið

Með þessu samkomulagi lýkur aðkomu Vísis að útgerð og vinnslu á Þingeyri sem félagið hefur staðið að síðustu 15 árin og traustir aðilar taka við áframhaldandi rekstri og uppbyggingu. Vísir mun stunda fiskvinnslu á Þingeyri fram í mars á næsta ári.

Samkomulagið er gert með fyrirvara um samþykki Byggðastofnunar sem gert er ráð fyrir að liggi fyrir um miðjan desember en stuðningur stofnunarinnar er mikilvægur til að skapa grundvöll fyrir starfsemi þar sem nægt hráefni, arðsemi og samkeppnishæfni skipta máli.

Fyrri fréttir mbl.is um málið:

Brothætt ástand á Flateyri

10 manns sagt upp hjá Arctic Odda á Flateyri

Arctic Oddi selur bolfiskvinnslu

Frá Flateyri
Frá Flateyri mbl.is/Helgi Einarssona
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK