Aukagjöldin jafna flugverðið

Séu farþegar tilbúnir að sleppa ferðatöskunni er WOW air ódýrasti …
Séu farþegar tilbúnir að sleppa ferðatöskunni er WOW air ódýrasti kosturinn.

Töskugjöld WOW air eru farin að hafa veruleg áhrif á flugverð og rétt rúmlega þrjátíu þúsund króna meðalverð á flugmiða fram og til baka til London með flugfélaginu verður að næstum fjörtíu þúsund krónum að viðbættri einni ferðatösku og bókunargjaldi. Er tösku- og bókunargjald þannig orðið 25 prósent af heildarverði flugmiðans.

Þetta kemur fram í verðkönnun Dohop. Tekin voru saman verð á flugi frá Íslandi næstu vikur og verð til áfangastaða þar sem samkeppni er á markaðnum var borið saman. Við gerð verðkönnunarinnar er gert ráð fyrir einum farþega sem hefur eina ferðatösku og eina tösku í handfarangur sem er minni en fimm kílógrömm að þyngd.

WOW ódýrast ef engin ferðataska

Þá kemur fram að fargjald Icelandair, sem nemur fjörtíu þúsund krónum, breytist ekkert. „Það sem virðist í fyrstu vera tíu þúsund króna verðmunur verður því aðeins tæplega þúsund króna munur þegar uppi er staðið,“ segir í tilkynningu frá Dophop. Sleppi viðkomandi að taka með sér ferðatösku helst meðalverð WOW air til London þó 30.990 krónur.

Séu farþegar tilbúnir að sleppa ferðatöskunni er WOW air ódýrasti kosturinn á flugi til allra áfangastaða þar sem einhver samkeppni er; Parísar, London og Kaupmannahafnar. Norwegian er ódýrastir til Óslóar.

Þá segir að áhugavert sé að sjá að Icelandair er ódýrara en easyJet til London þegar miðað er við að farþeginn hafi með sér eina tösku. Sleppi farþeginn töskunni er meðalverð flugfélaganna það sama, eða fjörtíu þúsund krónur.

Gert er ráð fyrir einum farþega með eina ferðatösku og …
Gert er ráð fyrir einum farþega með eina ferðatösku og eina tösku í handfarangur sem er minni en 5 kg að þynd. Mynd/Dohop
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK