Greiðslukortavelta erlendra ferðamanna var 31,3% meiri í nóvember síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. Það er mesta aukning í einum mánuði það sem af er þessu ári, ef bornar eru saman veltutölur sömu mánaða síðasta árs. Erlendir ferðamenn greiddu með kortum sínum næstum 6,5 milljarða króna í nóvember en í fyrra var upphæðin næstum 5 milljarðar kr.
Sá útgjaldaliður sem erlendir ferðamenn greiddu mest fyrir með kortum sínum var í ýmsar skipulegar ferðir sem hópum og einstaklingum stendur til boða, eða 1,3 milljarður kr., sem er 70% aukning frá nóvember í fyrra. Næstmestu vörðu erlendir ferðamenn í hótel og gistiþjónustu, eða 1,2 milljarði kr. sem er 47% hærri upphæð en í sama mánuði í fyrra. Þá keyptu erlendir ferðamenn fyrir 1,1 milljarð kr. í verslunum hér á landi í síðasta mánuði sem er 19% aukning frá því í fyrra.
Þegar borin eru saman útgjöld til mismunandi kosta til að ferðast um landið virðist sem akstur bílaleigubíla njóti mestra vinsælda. Erlendir ferðamenn greiddu 297 millj. kr. til bílaleiga í nóvember sem er 42% hærri upphæð en í nóvember í fyrra. Þá greiddu þeir 170 millj. kr. fyrir bensín og 3,5 millj. kr. í vegatolla og stöðumæla í mánuðinum. Þannig nam erlend kortavelta vegna bílaleiga, bensíns og vegatolla samtals 470,5 millj. kr. í nóvember. Hins vegar voru samanlögð útgjöld ferðamanna sem ferðuðust með innanlandsflugi í rútum og með ferjum alls 274 millj. kr.
Vetraferðamennska virðist blómstra sem aldrei fyrr og fjölmargir þjónustuaðilar njóta góðs af henni. Þannig jókst erlend kortavelta á veitingahúsum um 30% frá því í nóvember í fyrra. Ferðamenn sækja söfn og gallerí í auknum mæli því 73% aukning var í erlendri kortaveltu á sýningar og gallerí og 42% aukning á tónleika og leikhús.
Þá kaupa útlendingar töluvert af hinum rómaða íslenska útivistafatnaði því kortavelta í fataverslunum var 220 millj. kr. sem er 10% aukning frá nóvember í fyrra. Erlend kortavelta í tollfrjálsum verslunum nam 155 millj. kr. sem er 30% aukning frá því í fyrra. Þá keyptu útlendingar matvæli í dagvöruverslunum fyrir 180 millj. kr. sem er 29% aukning frá því í fyrra.