Skattur sem bítur í skottið á sér

Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. mbl.is/Ómar

Frá síðustu alþingiskosningum hefur tryggingargjald hækkað um níu milljarða króna á ári þrátt fyrir að atvinnuleysi hafi farið minnkandi. Alls hefur skatturinn hækkað um 3,015 prósent af launum, eða um þrjátíu milljarða, frá árinu 2008.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins þar sem ríkisstjórnin er gagnrýnd fyrir að auka skattheimtu á atvinnulífið verulega og „halda áfram á sömu braut og fyrri ríkisstjórn sem  núverandi stjórnarflokkar gagnrýndu harkalega fyrir skattpíningu.“

„Með minnkandi greiðslum atvinnuleysisbóta hefði tryggingagjaldið átt að lækka að sama marki, enda segir svo í lögum um tryggingagjald. Svo hefur ekki orðið,“ segir í tilkynningunni.

Mætti lækka gjaldið um 2 prósent

Atvinnuleysi náði hámarki árið 2009 og var 8,0% af mannafla en verður 3,2% á næsta ári samkvæmt þjóðhagsspá Hagstofunnar. „Minna atvinnuleysi gefur tilefni til rúmlega 2% lækkunar tryggingagjaldsins sem ekki hefur orðið af.“

Þá segir að hækkun tryggingagjaldsins og aukin skattheimta ríkisins hafi bein áhrif á svigrúm atvinnulífsins til að hækka laun þar sem sama krónan verði ekki greidd tvisvar. „Skattur á launagreiðslur fyrirtækja er slæmur gjaldstofn til að fjármagna opinber útgjöld. Eftir því sem tryggingagjaldið hækkar dregur úr getu og vilja fyrirtækjanna til að ráða nýtt fólk. Geta þeirra til að stunda rannsóknir og nýsköpun minnkar. Markaðssókn líður fyrir. Hærra tryggingagjald dregur úr hagnaði fyrirtækja og tekjuskattsgreiðslur fyrirtækjanna dragast saman.“

Borga fyrir ellefta starfsmanninn

Bent er á að tryggingargjaldið hafi sérstaklega slæm áhrif á lítil fyrirtæki þar sem ráðning hvers nýs starfsmanns sé stórt mál. Á einfaldan hátt mætti segja að fyrirtæki með tíu starfsmenn borgi ríkinu laun þess ellefta í formi tryggingagjalds. „Á meðan það er eins hátt eins og raun ber vitni munu fyrirtækin vaxa hægar en ella og verðmætasköpunin verður minni.  Þannig bítur hækkun tryggingagjaldsins í skottið á sér og minnkar aðrar tekjur ríkisins – bæði beint og óbeint.“

Atvinnutryggingagjaldið stendur undir greiðslu atvinnuleysisbóta og ábyrgðasjóði launa sem ábyrgist að starfsmenn fái sitt við gjaldþrot fyrirtækja. Þá er fæðingarorlof fjármagnað með hluta af tryggingagjaldi. 

Tryggingargjald hefur hækkað um þrjátíu milljarða frá árinu 2008.
Tryggingargjald hefur hækkað um þrjátíu milljarða frá árinu 2008. mbl.is/Ómar Óskarsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK