Greiða 1.620 milljónir í sekt

Stóru viðskiptabankarnir þrír.
Stóru viðskiptabankarnir þrír. Samsett mynd/Eggert

Arion banki, Íslandsbanki, Landsbankinn, Borgun og Valitor hafa, hvert fyrirtæki fyrir sig, gert sáttir við Samkeppniseftirlitið vegna rannsóknar eftirlitsins á samkeppnishömlum á greiðslukortamarkaði. Samkeppniseftirlitið hefur lagt sektir á félögin sem samanlagt nema 1.620 milljónum króna.

Málið hófst með kvörtun Kortaþjónustunnar ehf. sem beindist að útgefendum greiðslukorta (Arion banka, Íslandsbanka, Landsbankanum) og færsluhirðum (Borgun og Valitor). Taldi Kortaþjónustan að þessir aðilar hefðu gerst brotlegir við samkeppnislög með ýmsum aðgerðum sem fyrirtækið taldi að hefðu hindrað samkeppni á markaðnum. Hinn 8. mars árið 2013 birti Samkeppniseftirlitið aðilum frummat sitt í því skyni að auðvelda þeim að nýta andmælarétt sinn. Í kjölfarið óskuðu bankarnir, Borgun og Valitor, hver um sig, eftir því að heimild samkeppnislaga til að ljúka málum með sátt yrði nýtt.

„Sáttir þessar leiða til jákvæðra grundvallarbreytinga á skipulagi og framkvæmd á greiðslukortamarkaði og munu að mati Samkeppniseftirlitsins verða til verulegra hagsbóta fyrir bæði neytendur og atvinnulífið. Breytingarnar fela m.a. í sér að hámark verður sett á milligjald sem er þóknun sem rennur til bankanna (sem útgefenda greiðslukorta) fyrir þjónustu sem bankar veita söluaðilum (m.a. verslunum) í tengslum við greiðslukortanotkun.  Munu breytingarnar í heild  leiða til lækkunar frá því sem nú er. Einnig leiða breytingarnar til aukins gagnsæis í gjaldtöku og er ætlað að hafa í för með sér aukna hagræðingu á þessu sviði. Jafnframt munu Valitor og Borgun skilja á milli útgáfuþjónustu og færsluhirðingar, en samrekstur þessara starfsþátta hefur falið í sér samkeppnishindranir gagnvart öðrum keppinautum á greiðslukortamarkaði. Þá er horfið frá því að keppinautar á viðskiptabankamarkaði eigi saman greiðslukortafyrirtæki, en það fyrirkomulag hefur ekki gefist vel í samkeppnislegu tilliti. Samhliða er tryggt að Valitor og Borgun þjónusti aðra en eigendur sína á jafnræðisgrundvelli.

Framangreindar sáttir leiða til breytinga á umgjörð fjármálamarkaðar. Það er hins vegar á ábyrgð og forræði viðkomandi banka og greiðslukortafyrirtækja að taka viðskiptaákvarðanir innan þeirrar umgjarðar, á grundvelli heilbrigðrar samkeppni,“ segir í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu.

Sektir skapa varnaðaráhrif

Sökum umræddra brota og í því skyni að skapa varnaðaráhrif hefur Samkeppniseftirlitið lagt sektir á félögin sem samanlagt nema 1.620 milljónum króna. Sekt Íslandsbanka nemur 380 milljónum króna, sekt Arion banka nemur 450 milljónum króna, sekt Landsbankans nemur 450 milljónum króna, sekt Valitors nemur 220 milljónum króna og sekt Borgunar nemur 120 milljónum króna.

Við ákvörðun sekta naut Íslandsbanki sérstakrar ívilnunar á grundvelli þess að hann lauk sátt við Samkeppniseftirlitið fyrstur málsaðila. Er almennt séð mikilvægt að fyrirtæki sem hafa sérstakt frumkvæði að gera jákvæðar breytingar á markaði og viðurkenna brot njóti sérstakar lækkunar á sektum. Þessi ríki samstarfsvilji Íslandsbanka hafði mjög jákvæð áhrif á framgang og niðurstöðu málsins.

Við ákvörðun sekta var almennt litið til ýmissa málsbóta, m.a. þess að allir hafa framangreindir aðilar fallist á að hlíta viðurhlutamiklum fyrirmælum sem lúta að breytingum á skipulagi á þeim markaði sem um ræðir og einnig var m.a. litið til góðs samstarfsvilja allra viðkomandi aðila sem stytt hefur rannsókn og málsmeðferð samkeppnisyfirvalda.

Af hálfu fyrirtækjanna er lögð á það áhersla að í málinu sé ekkert sem bendi til þess að starfsmenn þeirra hafi verið í vondri trú um lögmæti þeirra samninga sem gerðir voru við færsluhirða. Í málinu hafi ekki komið fram gögn eða upplýsingar sem benda til hins gagnstæða.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK