Skipti selur 2,6 milljarða kröfu

Orri Hauksson, forstjóri Símans og Skipta.
Orri Hauksson, forstjóri Símans og Skipta. mbl.is/Golli

Skipti hf. hefur selt 2,6 milljarða kröfu félagsins á hendur Glitni. Hagnaður félagsins af sölunni nemur 305 milljónum króna en krafan var bókfærð á 2,3 milljarða króna. Kaupandi kröfunnar var  erlend fjármálastofnun og er greitt fyrir kröfuna með reiðufé.

„Við erum mjög ánægð með þessa sölu sem markar lok á löngu ferli og eyðir ákveðinni óvissu í efnahagsreikningi félagsins. Söluverðið er mjög ásættanlegt og lausafjárstaða félagsins er nú enn sterkari en áður,“ er haft eftir Orra Haukssyni, forstjóri Símans og Skipta, í tilkynningu.

Forsaga málsins er að á árinu 2009 lögðu Skipti fram kröfur á hendur Glitni vegna framvirkra gengissamninga. Krafan á Glitni var upphaflega færð til bókar á 9,5 milljarða króna. Glitnir hefur viðurkennt kröfuna. Árið 2011 höfðuðu Skipti mál á hendur Glitni vegna uppgjörsgengis samninganna og töpuðu Skipti því máli í héraðsdómi á árinu 2013 og í Hæstarétti á árinu 2014.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK