Financial Times mælir með Hótel Búðum

Hótel Búðir á Snæfellsnesi.
Hótel Búðir á Snæfellsnesi. mbl.is/Brynjar Gauti

Hótel Búðir á Snæfellsnesi er efst á lista Financial Times yfir 10 afskekkta gististaði sem blaðið mælir með til að komast frá öllu saman. Gististaðir í Sviss, Kína, Namibíu, Botsvana, Vanuatu, Bandaríkjunum, Mongólíu, Marokkó og á Páskaeyju eru einnig á lista blaðsins.

Blaðamenn FT segja að Hótel Búðir sé mögulega eina raunverulega strandhótelið á Íslandi sem liggi rétt hjá hrauni og sé með útsýni yfir Snæfellsjökul. Á sumarkvöldi, þegar eldur er kveiktur á ströndinni og hótelgestir stinga sér til sunds, sé staðurinn óraunverulegur. 

Umfjöllun FT má lesa hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK