Hækkun sjöunda daginn í röð

AFP

Verð á hlutabréfum í kauphöllinni í New York hækkaði við opnum markaða í dag. Dow Jones-hlutabréfavísitalan hækkaði 0,17% fimm mínútum eftir að viðskipti hófust.

S&P-vísitalan hækkaði um 0,27% og Nasdaq um 0,32%.

Þetta er því sjöundi dagurinn í röð sem hlutabréfaverð hækkar í kauphöllinni, en Dow fór í fyrsta sinn yfri 18.000 stig sl. þriðjudag í kjölfar jákvæðra frétta af bandarísku efnhagslífi á þriðja ársfjórðungi. 

Búist er við minniháttar viðskiptum  í dag en markaðirnir voru lokaðir í gær, jóladag.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK