Frá og með 1. mars munu Oddi ehf., OPM ehf. og Kvos ehf. sameinast undir nafni Odda. Þorgeir Baldursson, forstjóri Kvosar, verður forstjóri sameinaðs fyrirtækis.
Í dag er Kvos móðurfyrirtæki bæði Odda og OPM. Oddi hefur haft á sinni könnu sölustarfsemi, hönnun og því um líkt en OPM haldið utan um þrjár framleiðslueiningar. Kassaverksmiðjuna við Köllunarklettsveg (gömlu Kassagerðina), prentsmiðjuna í Höfðabakka og plastframleiðsluna við Fossháls.