Semja um búnað fyrir 1,2 milljarða

HB Grandi
HB Grandi Þórður

HB Grandi hefur samið við Skagann á Akranesi og 3X Technologies á Ísafirði um að setja upp nýjan vinnslu- og lestarbúnað í Engey RE, Akurey AK og Viðey RE, nýja ísfisktogara sem HB Grandi fær afhenta á árunum 2016 og 2017. Samningarnir hljóða samtals upp á um 1.190 milljónir króna og mun vinna við uppsetninguna fara fram á Akranesi.

Þetta kemur fram í tilkynningu HB Granda til Kauphallarinnar.

Um er að ræða tvo samninga, annars vegar um búnað á vinnsludekki og hins vegar um sjálfvirkt flutningakerfi kara. Með sjálfvirka flutningakerfinu þarf ekki lengur að vinna við að setja fisk í kör og ísa hann í lest togaranna.

Lest skipanna verður því mannlaus. Flutningskerfið mun bæta vinnuaðstöðu sjómanna verulega, tryggja aukin gæði og lækka rekstrarkostnað. Búnaðurinn á vinnsludekki mun einnig bæta vinnuaðstöðu og tryggja betri meðhöndlun fisks, lifrar, hrogna og slógs, afkastamikla blóðgun og slægingu og betri kælingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK