Ótakmarkað gagnamagn í boði frá áramótum

Hringiðan.
Hringiðan.

Hringiðan hóf um áramótin að bjóða upp á ótakmarkað gagnamagn á ljósleiðara, ljósnets og ADSL-tengingum á einu verði. Fram kemur í tilkynningu, að Hringiðan hafi gert þetta fyrst íslenskra fjarskiptafyrirtækja.

„Var þetta verkefni í undirbúningi meirihluta árs 2014 og hafa viðtökur við því verið mjög góðar. Við höfum ávallt leitast við að vera leiðandi og bjóða viðskiptavinum okkar eins hagstæð kjör og hægt er með einfaldleika í huga. Stefnan er tekin á að halda áfram að vinna að nýjungum á þessu ári og er eflaust ekki langt í að sú næsta líti dagsins ljós,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. 

Nánar hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK