Ekki gengið að tilboðum í Hótel Sögu

Radisson Blu Hótel Saga.
Radisson Blu Hótel Saga. mbl.is

Bændasamtök Íslands hafa ákveðið að ganga ekki til viðræðna um sölu á Hótel Sögu á grundvelli fyrirliggjandi tilboða sem fram komu í söluferli sem fyrirtækjaráðgjöf MP banka annaðist. Það er mat stjórnar Bændasamtakanna að hagstæðara sé að halda áfram góðum rekstri hótelsins fremur en að ganga að fyrirliggjandi tilboðum. Bændasamtökin þakka þeim sem tóku þátt í söluferlinu fyrir áhugann og einnig starfsfólki Hótel Sögu og MP banka fyrir þá vinnu sem þau lögðu til í ferlinu.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Bændasamtökin hófu söluferli Hótel Sögu með tilkynningu þann 19. nóvember sl. og óskuðu þá eftir formlegum tilboðum í kaup á fasteign og rekstri Hótel Sögu. Var ákveðið að fara í þetta ferli eftir að fjöldi fyrirspurna hafði borist um kaup á hótelinu. Fyrirtækjaráðgjöf MP banka var ráðin til þess að sjá um söluferlið og annast kynningu fyrir áhugasama kaupendur með gagnsæjum hætti til að tryggja jafnræði meðal áhugasamra fjárfesta. Frestur til að gera óskuldbindandi tilboð var gefinn til 12. desember sl. og bárust þá sex tilboð.

Ákveðið var að gefa völdum tilboðsgjöfum tækifæri til að leggja fram skuldbindandi tilboð og fengu þeir í framhaldinu að skoða fasteignina og upplýsingar um reksturinn. Gefinn var frestur til 16. janúar sl. til að leggja fram skuldbindandi tilboð og bárust fjögur tilboð. Sem fyrr segir er það mat stjórnar Bændasamtakanna að ekkert fyrirliggjandi tilboða sé nægilega hagstætt.

„Við erum ánægð með þann áhuga sem kom fram í þessu söluferli,“ er haft eftir Sigurgeir Sindra Sigurgeirssyni, formanni Bændasamtaka Íslands, í fréttatilkynningunni. „Því miður bárust okkur ekki nægilega hagstæð tilboð til að skynsamlegt sé að selja eignina á þessum tímapunkti. Okkar markmið er að ávaxta eignir samtakanna með sem bestum hætti. Þegar við lögðum mat á fyrirliggjandi tilboð komumst við að þeirri niðurstöðu að á þessum tímapunkti þjónaði áframhaldandi rekstur hótelsins betur því markmiði. Það hefur verið mikil gróska í ferðaþjónustu á Íslandi undanfarin misseri. Næstu skref hjá okkur eru að hefja vinnu við endurbætur á hótelinu til að tryggja að Hótel Saga hafi áfram þann virðulega sess sem það hefur ávallt haft í hugum Íslendinga.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK