Alls var fluttur út makríll fyrir 21,6 milljarða króna á fyrstu ellefu mánuðum síðasta árs.
Það er 1,9 milljörðum meira en á sama tíma árið 2013 þegar flutt var út fyrir 19,7 milljarða.
Meðalverð hefur lækkað um 5% á milli ára sem er minna en búast mátti við þegar horft er til efnahagsástandsins í Rússlandi, en þar er stærsti markaður Íslands fyrir makríl, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.