Smálánafyrirtæki brutu gegn lögum

Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest ákvörðun Neytendastofu um að smálánafyrirtækin 1909, Hraðpeningar og Múla hafi brotið gegn lögum um neytendalán með innheimtu kostnaðar fyrir flýtiafgreiðslu lánshæfismats. Frá þessu er sagt á vef Neytendastofu.

Í júní tók Neytendastofa ákvarðanir gagnvart öllum smálánafyrirtækjum þar sem stofnunin komst að þeirri niðurstöðu að gjald fyrir flýtiafgreiðslu teldist hluti af heildarlántökukostnaði og skyldi því taka tillit til þess við útreikning árlegrar hlutfallstölu kostnaðar (ÁHK). Samkvæmt lögum um neytendalán má ÁHK ekki vera hærra en 50% að viðbættum stýrivöxtum en með því að gjald fyrir flýtiafgreiðslu sé innifalið í ÁHK verður hún mun hærri.

Fyrirtækin kærðu ákvarðanir til áfrýjunarnefndar neytendamála sem hefur nú staðfest ákvörðun Neytendastofu gagnvart 1909, Hraðpeningum og Múla. Úrskurður í máli Kredia og Smálán liggur nú þegar fyrir þar sem ákvörðun Neytendastofu var jafnframt staðfest.

Sjá úrskurðinn á vef Neytendastofu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK