Færri fyrirtæki vilja taka upp evru

ESB
ESB AFP

Sextíu prósent aðildarfyrirtækja Félags atvinnurekenda telja að halda hefði átt aðildarviðræðum við Evrópusambandið áfram. Þetta kemur fram í nýrri könnun meðal félagsmanna, þar sem 64% fyrirtækja með beina félagsaðild svöruðu. Sama hlutfall sagðist telja að halda ætti aðildarviðræðum áfram í sambærilegri könnun á síðasta ári.

Þetta kemur fram í frétt á vef félagsins. Þar segir einnig að aðeins 19% félagsmanna telji krónuna framtíðargjaldmiðil fyrir Ísland, en 54% eru slíkri fullyrðingu ósammála. Þetta er einnig mjög svipuð niðurstaða og í könnuninni í fyrra. Hins vegar hafi orðið talsverð breyting á afstöðu aðildarfyrirtækja til evrunnar. Í fyrra hafi 57% sagst telja að taka ætti hana upp á Íslandi við aðild að ESB, en nú segjast aðeins 39% á þeirri skoðun. Um 40% eru á móti, en voru 28% í fyrra. Óákveðnum fjölgar einnig.

Um 29% aðildarfyrirtækja segjast hlynnt því að Ísland gangi í ESB, en 41% er því andvígt. Þetta eru jafnframt mjög svipaðar niðurstöður og í fyrra.

Þá segjast 27% sammála því að taka ætti einhliða upp annan gjaldmiðil hér á landi. Það hlutfall var í fyrra 33%. Andvíg því eru um 40%, einnig heldur færri en í fyrra, en óákveðnum fer fjölgandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK