WOW air kaupir tvær flugvélar

WOW air hefur fest kaup á tveimur nýjum Airbus A321-211 …
WOW air hefur fest kaup á tveimur nýjum Airbus A321-211 farþegaþotum. Ljósmynd/WOW air

Flugfélagið WOW air hefur fest kaup á tveimur nýjum Airbus A321-211 farþegaþotum og verða þær afhentar félaginu um miðjan mars. Listaverð á slíkum flugvélum frá evrópska flugvélaframleiðandanum Airbus eru um 15 milljarðar íslenskra króna hver flugvél.

„Þetta eru tímamót í sögu WOW air og það er sannarlega ánægjulegt að geta boðið farþegum okkar upp á nýjustu flugvélarnar á Íslandi,“ segir Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi WOW air, í tilkynningu. „Nýju Airbus A321 flugvélarnar eru mun sparneytnari og umhverfisvænni heldur en eldri vélar og mun þetta gera okkur kleift að bjóða enn lægri fargjöld í framtíðinni.“

Farþegaþoturnar eru sérútbúnar með auka eldsneytistönkum og eiga að eyða mun minna eldnseyti eða 25% minna en t.d. Boeing 757. Þá eiga þær að vera hljóðlátari og umhverfisvænni, þ.e. með minni CO2 útblástur. „Jafnframt þýðir öflugur og háþróaður tæknibúnaður Airbus-vélanna minni viðhaldskostnað auk þess sem flugvélarnar eru hljóðlátari. Farþegarýmið í A321 er einstaklega breitt og rúmgott, sem þýðir að hvert sæti er u.þ.b. tommu breiðara en í Boeing 757,“ segir í tilkynningunni.

Í A321 vélunum hjá WOW air verða sæti fyrir 200 farþega en þessi tegund flugvéla getur þó rúmað sæti fyrir allt að 230 farþega.

„Airbus A321 er mjög vinsælar flugvélar sem munu passa óaðfinnanlega og vera góð viðbót við Airbus flugflota WOW air. Flugvélarnar munu gera WOW air kleift að vaxa enn frekar og ná aukinni markaðhlutdeild á mikilvægum flugleiðum með nýjustu, skilvirkustu og afkastamestu vélunum sem til eru í heiminum,“ segir John Leahy, framkvæmdastjóri hjá Airbus, í tilkynningunni frá WOW air.

Þoturnar verða notaðar í Norður-Ameríkuflug WOW air sem hefst 27. mars til Boston en flugfélagið mun svo einnig hefja flug til Washington, D.C. 8. maí. Flogið verður fimm sinnum í viku til Washington, D.C. og sex sinnum í viku til Boston. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK