Krefjast átta milljarða frá Valitor

Höfuðstöðvar Valitors í Dalshrauni í Hafnarfirði.
Höfuðstöðvar Valitors í Dalshrauni í Hafnarfirði.

Datacell og Sunshine Press Production hafa stefnt Valitor vegna rúmlega átta milljarða skaðabótakröfu. Málið var þingfest þann 22. janúar en héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í morgun kröfu Valitor um málskostnaðartryggingu. Valitor hefur nú fjögurra vikna frest til þess að skila greinargerð. 

Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Datacell og Sunshine Press Production, segir kröfu Valitor um málskostnaðartryggingu hafa byggt á því að Datacell væri í raun gjaldþrota. Hann segist hafa lagt fram ársreikning er sýnir að stærsta krafa á hendur félaginu sé víkjandi lán eiganda og félagið sé ekki ógjaldfært.

Eftir að fá niðurstöðu matsmanna

Málið á ræt­ur að rekja til lok­un­ar Valitor árið 2011 á greiðslugátt til Datacell sem safnaði greiðslum fyr­ir Suns­hine Press Producti­ons, fyrirtækið að baki Wiki­leaks. Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Datacell og Sunshine Press Production, bendir á að Hæstiréttur hafi dæmt lokunina ólögmæta og á því byggi skaðabótakrafan. Gáttin var alls lokuð í 617 daga og skaðabótakrafan byggir á tjóninu sem fyrirtækin urðu fyrir á meðan gáttin var lokuð. Krafan byggir á útreikningum Sigurjóns Þ. Árnasonar, sem taldi tjónið vera á bilinu frá 1,5 milljarði króna til átta milljarða.

Varakrafa í málinu byggir þá á niðurstöðu matsmanna sem þó hafa ekki verið dómkvaddir. Sveinn Andri segist hafa valið að höfða matsmálið samhliða skaðabótamálinu og og taka það samhliða.

Ekki tekið efnislega á skaðabótakröfunni

Héraðsdóm­ur Reykja­ness hafnaði fyrr í mánuðinum kröfu Datacell og Suns­hine Press Producti­ons um að Valitor verði tekið til gjaldþrota­skipta vegna ógreiddr­ar skaðabóta­kröfu sem hljóðaði upp á 10,3 millj­arða. Málið var höfðað á grund­velli 5. töluliðar, 2. máls­grein­ar 65. grein­ar laga um gjaldþrota­skipti, en samkvæmt ákvæðinu hefur kröfu­hafi sem hefur fengið sér­staka greiðslu­áskor­un þrjár vik­ur til að svara hvort hann ætlaði að borga eða væri greiðslu­hæf­ur.Töldu fyrirtækin að svör Valitor hefðu verið ófullnægjandi og taldi héraðsdómur að skilyrði ákvæðisins væru ekki uppfyllt.

Sveinn Andri bendir á að gjaldþrotaskiptamálið hafi ekki tekið efnislega á skaðabótakröfunni.

Aðspurður um samaðild félaganna tveggja að málinu segir Sveinn Andri þetta vera skólabókardæmi þar um. „Þetta er sami tjónsatburður. Annar aðilinn er með kröfu utan samninga en hinn innan samninga og rökrétt er fyrir þá sem verða fyrir tjóni vegna sama atviks að höfða málið saman,“ segir hann.

Julian Assange, stofnandi Wikileaks.Málið á ræt­ur að rekja til lok­un­ar …
Julian Assange, stofnandi Wikileaks.Málið á ræt­ur að rekja til lok­un­ar Valitor árið 2011 á greiðslugátt til Datacell sem safnaði greiðslum fyr­ir Suns­hine Press Producti­ons, fyrirtækið að baki Wiki­leaks. AFP
Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Datacell og Sunshine Press Productions.
Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Datacell og Sunshine Press Productions. Guðmundur Rúnar Guðmundsson
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK