Hagnaður Landsvirkjunar 10,2 milljarðar

Nettó skuldir Landsvirkjunar halda áfram að lækka og hafa nú …
Nettó skuldir Landsvirkjunar halda áfram að lækka og hafa nú lækkað um rúma 80 milljarða króna frá árslokum 2009 að sögn Harðar Arnarsonar, forstjóra Landsvirkjunar. mbl.is/Árni Sæberg

Hagnaður Landvirkjunar á síðasta ári nam 78,4 milljónum Bandaríkjadala, eða sem samsvarar um 10,2 milljörðum króna. Nettó skuldir fyrirtækisins hafa lækkað um 238,7 milljónir dala frá fyrra ári, eða sem jafngildir um 31 milljarði króna. Skuldirnar voru í árslok 284,8 milljarðar króna.

Þetta kemur fram í ársreikningi Landsvirkjunar fyrir árið 2014. 

Fram kemur, að rekstrartekjur hafi numið 438,3 milljónum dala, eða um 57 milljörðum kr., sem sé 3,6% hækkun frá árinu áður.

EBITDA nam 332,2 milljónum dölum, 43,2 milljörðum kr., sem er 0,9% hækkun frá árinu áður. EBITDA hlutfall er 75,8% af tekjum, en var 77,8% árið áður.

Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði nam 146,9 milljónum dölum, 19,1 milljarði kr.,, en var 121,8 milljónir dala, 15,8 milljarðar kr., árið áður og hækkar því um 20,5% milli ára.

Hagnaður ársins var 78,4 milljónir dala, 10,2 milljarðar kr., en árið áður var tap 38,5 milljónir dala, 5,0 milljarðar kr.

18,9 milljarðar til lækkunar skulda og greiðslu arðs

Nettó skuldir lækkuðu um 238,7 milljónir dala, 31 milljarð króna, á milli ára og voru í árslok 2.190,5 milljónir dala, eða sem samsvarar 284,8 milljörðum kr.

Handbært fé frá rekstri nam 233,8 milljónum dala, 30,4 milljörðum kr., sem er 9,5% lækkun frá árinu áður.

Fjárfestingar námu 88,3 milljónum dala, 11,5 milljörðum kr. Handbært fé frá rekstri eftir fjárfestingar var því 145,5 milljónir dala, 18,9 milljarðar kr., sem nýtt er til lækkunar skulda og greiðslu arðs til eigenda.

Reksturinn gekk vel á seinasta ári

„Rekstur Landsvirkjunar gekk vel á árinu 2014 þrátt fyrir krefjandi rekstrarumhverfi, einkum vegna lágs álverðs og takmörkunar á afhendingu raforku vegna slakrar vatnsstöðu. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði var um 19 milljarðar króna, hækkaði um 20% frá fyrra ári og hefur ekki verið meiri áður.

Fyrirtækið byggir á góðum grunni hjá starfsmönnum í orkuvinnslu um land allt á 50 ára afmælisári þess og árangur af öflugri fjármálastjórn ásamt auknu markaðsstarfi og rannsóknarstarfi er þegar farinn að skila sér.

Nettó skuldir halda áfram að lækka og hafa nú lækkað um rúma 80 milljarða króna frá árslokum 2009.  Með aukinni fjármunamyndun vegna aukinnar orkusölu, hærra raforkuverðs og lægri skuldsetningar munu tækifæri til arðgreiðslna aukast verulega á næstu árum,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, í tilkynningu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK