Aðeins þau íslensku rukka fyrir innsláttarvillur

Icelandair og WOW taka gjald fyrir að laga innsláttarvillur.
Icelandair og WOW taka gjald fyrir að laga innsláttarvillur.

Ef þú slærð nafnið þitt rangt inn við bókun á flugmiða þá kostar að leiðrétta villuna en þó aðeins ef flogið er með Icelandair eða WOW air. Umsvifamestu erlendu flugfélögin hér á landi rukka ekki fyrir viðvikið. 

Túristi vakti athygli á þessu í dag og benti á að það kostar þrjú þúsund krónur að laga villur í nafni farþega hjá Icelandair en hjá WOW air er gjaldið 2.998 krónur fyrir miða sem gildir báðar leiðir. Helmingi minna ef aðeins er farið aðra leiðina.

Gjaldið er tekið þrátt fyrir að um sama farþega sé að ræða ef nafnið samrýmist ekki því sem stendur á vegabréfi. Jafnvel þótt mistökin séu smávægileg, eins og t.d. að einn stafur í nafni gleymist eða að farið sé á stafavillt á lyklaborðinu.

„Beitum almennri skynsemi“

Í frétt Túrista er bent á að flugfélögin easyJet, SAS og Norwegian, sem öll eru umsvifamikil á Keflavíkurflugvelli, rukki ekki fyrir lagfæringar á innsláttarvillum. Sagði Andy Cockburn, talsmaður easyJet að starfsmenn flugfélagsins beiti almennri skynsemi og leiðrétti villunar án aukakostnaðar. Þá voru svör upplýsingafulltrúa Norwegian og SAS á sama veg. Áréttaði Knut Morten Johansen hjá SAS þó einnig að farþegar væru sjálfir ábyrgir fyrir því að skrifa réttar upplýsingar í bókun og þær verði að passa við það sem kemur fram í vegabréfi viðkomandi.

Aðspurður um ástæður gjaldtökunnar hjá Icelandair sagði Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi félagsins, í samtali við mbl að breytingar á útgefnum farseðlum feli í sér vinnu starfsmanna og endurútgáfu miðans. Þá sagði hann þetta vera með ýmsum hætti hjá flugfélögum sem öll reyna að beita almennri skynsemi við úrlausn þessa mála.

easyJet, SAS og Norwegian taka ekki gjald fyrir að leiðrétta …
easyJet, SAS og Norwegian taka ekki gjald fyrir að leiðrétta mistökin.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK