Fengu Njarðarskjöld og Freyjusóma

Njarðarskjöldurinn og Freyjusómi 2014 voru afhent í Hörpu í dag. Njarðarskjöldin fékk 66°Norður og Freyjusómann blómabúðin Upplifun, bækur og blóm. Njarðarskjöldurinn og Freyjusómi eru viðurkenningar og hvatningarverðlaun Reykjavíkurborgar sem veitt eru árlega til verslana eða verslunareigenda fyrir góða þjónustu og ferskan andblæ í ferðaþjónustu.

Njarðarskjöldurinn er hvatningarverðlaun Reykjavíkurborgar, Miðborgarinnar okkar, Félags atvinnurekenda, Samtaka verslunar og þjónustu, Kaupmannasamtök Íslands, Global Blue á Íslandi og Tax Free Worldwide – Ísland.

Njarðarskjöldurinn er nú veittur í nítjánda sinn en markmið verðlaunanna er að hvetja til bættrar og aukinnar verslunarþjónustu við ferðamenn í Reykjavík.

Njörður, sem skjöldurinn er kenndur við, var upphaflega frjósemisguð en síðar guð sæfarenda og sagður fésæll mjög. Sæfarendur þess tíma stunduðu gjarnan kaupskap og því við hæfi að kenna árleg hvatningarverðlaun til ferðamannaverslunar við guð siglinga og viðskipta.

Við tilnefningu ferðamannaverslunar ársins er leitast við að verðlauna þá verslun sem hefur náð hvað bestum söluárangri til erlendra ferðamanna milli ára. Horft er til markaðs- og kynningarmála, svo sem auglýsinga, vefs og útlits almennt. Aðrir þættir eru einnig skoðaðir sérstaklega svo sem þjónustulund, opnunartími, merkingar um endurgreiðslu virðisauka, lýsing, tungumálakunnátta starfsfólks og þekking á söluvörunum.

Ferskasti andblærinn

Freyjusómi er hvatningarverðlaun Reykjavíkurborgar, Miðborgarinnar okkar, Félags atvinnurekenda, Samtaka verslunar og þjónustu, Kaupmannasamtök Íslands, Global Blue á Íslandi og Tax Free Worldwide – Ísland.

Freyjusómi er viðurkenning sem nú er afhent í fjórða sinn samhliða afhendingu Njarðarskjaldarins. Viðurkenningin er veitt til þeirrar verslunar sem þykir koma með hvað ferskastan andblæ í verslunarrekstur á ferðamannamarkaði í borginni.

Nafn viðurkenningarinnar er sótt í norræna goðafræði eins og nafn Njarðarskjaldarins en Freyja var gyðja frjósemi og þykir því vel við hæfi að tengja Freyju við viðurkenninguna þar sem frjó hugsun og fersk nálgun er höfð að leiðarljósi í verslunarþjónustu gagnvart erlendum ferðamönnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK